Tilkynningar
« Previous EntriesSíðan er flutt
Saturday, September 27th, 2008Heimasíða Körfuknattleiksfélags ungmennafélags Álftaness hefur verið færð um set. Hingað nánar tiltekið.
Vinsamlegast uppfærið hlekki.
Úrslit dagsins
Monday, March 17th, 2008UMFÁ: 76
Mostri: 59
Tölfræði leiksins: KKÍ / NBA format.
Pistill um leikinn kemur líklega aldrei.
Myndir í boði Andra Janussonar.
Myndir í boði Gunnars Gunnarssonar.
Þetta var síðasti leikur tímabilsins. UMFÁ lýkur sínu fyrsta tímabili með 6 sigra og 4 töp, sem verður að teljast viðunandi. Næsta ár verður vonandi enn betra.
Meira um tölfræði og yfirferð tímabilsins síðar.
Úrslit dagsins
Sunday, March 9th, 2008KFF Þórir: 93
UMFÁ: 88
Eftir framlengingu
Tölfræði leiksins.
Pistill um leikinn kemur aldrei!
Myndir frá Andra Janussyni.
Myndir frá Gunnari Gunnarssyni.
Næsti leikur
Saturday, February 2nd, 2008Næsti leikur fer fram á morgun, sunnudaginn 3. febrúar 2008. Hann verður leikinn í Austurbergi gegn Glóa og hefst klukkan 14:00.
Fjölmennum og látum heyra í okkur.
Úrslit dagsins
Saturday, January 19th, 2008SIGUR!
UMFÁ: 84
ÍBV: 70
Tölfræði leiksins (frá KKÍ).
Pistill um leikinn frá karfan.is.
Myndir frá Andra Janussyni.
Myndir úr leiknum koma mögulega síðar.
Leikur laugardagsins
Thursday, January 17th, 2008Næstkomandi laugardag leikur UMFÁ gegn ÍBV í íþróttahúsinu á Álftanesi.
Þetta er annar leikur okkar gegn ÍBV en sá fyrri fór fram í Vestmannaeyjum í haust, sælla minninga. ÍBV sigraði 87-74.
Við mælum með því að fólk fjölmenni og hvetji sína menn/stráka/drengi/hnokka áfram.
Leikurinn hefst klukkan 16:00.
Jólagleði UMFÁ
Friday, December 14th, 2007Jólagleði UMFÁ fer fram á laugardaginn. Gleðin hefst á körfuboltaæfingunni sem hefst kl 17:00. Eftir æfingu verður farið út að borða í Golfklúbbi Álftaness, eftir því sem ég best veit. Síðan tekur við skemmtidagskrá, sem er líklega byggð upp á spilamennsku.
Sjáumst á laugardaginn!
Næsti leikur UMFÁ
Saturday, December 1st, 2007Næsti leikur UMFÁ fer fram á mánudaginn næstkomandi gegn KKF Þóri. Leikurinn fer fram á Álftanesi og byrjar kl 19:15.
Við hvetjum alla til að mæta og draga ættingja, maka (ft.), samstarfsfólk og/eða gangandi vegfarendur með sér.
Það kostar ekkert á leikinn. Um að gera að nýta sér það.
Æfing laugardagsins
Friday, November 2nd, 2007Síðunni var að berast tilkynning frá þjálfara félagsins:
„Æfing laugardagsins hefst klukkan 15:00 en ekki klukkan 17:00.“
Að skilaboðunum loknum reið hann í sólsetrið blístrandi rólega melódíu.
Vinnsla í gangi
Tuesday, October 30th, 2007Unnið er að uppbyggingu þessarar síðu í dag og næstu daga. Vinsamlegast sýnið biðlund og ekki þvælast fyrir verktökum, amk ekki án hjálms.
Búist er við því að síðan verði tilbúin um leið og síðasti leikmaður liðsins sendir inn upplýsingar um sig eða eftir 7-8 mánuði.