1. @ÍBV 20.10.07
Þann 20. október síðastliðinn var farið til Vestmannaeyja með Herjólfi til að leika okkar fyrsta leik gegn ÍBV. Stemningin í hópnum var góð og leikmenn tilbúnir í mikla ævintýraferð.
Í Herjólfi var póker spilaður í 70 sekúndur eða þar til Finnur hljóp ælandi í burt frá spilaborðinu. Skömmu síðar náði sjóveikin til fleiri leikmanna og brugðið var á það ráð að fara í ælukeppni. Finnur sigraði með þremur lítrum af ælu (1 lítri/klst). Næstur kom Davíð Freyr með 2 dl af ælu og 4 cl af hráku.
Fljótlega eftir komu í Vestmannaeyjaborg hófust leikar. ÍBV náði öruggri forustu í upphafi með 16-2 byrjun. UMFÁ minnkaði muninn í 16-12 áður en flautað var til loka fyrsta fjórðungs. Annar fjórðungur byrjaði rólega en smám saman tók ÍBV að auka muninn. Þegar staðan var 22-12 fyrir ÍBV tók Davíð Freyr sig til og skoraði næstu 6 af 8 stigum UMFÁ og staðan varð 30-20 ÍBV í vil. Í lok annars leikhluta skoruðu UMFÁ 11 stig í röð, Daði þar af 6 stig og leikar stóðu 37-35 fyrir ÍBV.
Þriðji fjórðungur var hnífjafn framan af en en lauk 58-51 fyrir ÍBV. Sömu sögu var að segja um fjórða leikhluta þar til um miðjan leikhluta þegar ÍBVmenn stungu af með skemmtilegri blöndu af stuttum skotum og vítaskotum. Leikurinn fór 87-74 fyrir ÍBV. Fyrsti ósigur UMFÁ í vetur staðreynd gegn sterku liði ÍBV.
Skipting stiga UMFÁ:
Daði: 30 stig.
Davíð: 17 stig.
Nick: 11 stig.
Finnur: 6 stig.
Stefán S.: 4 stig.
Adolf: 2 stig.
Víðir: 2 stig.
Kristján: 1 stig.
Ragnar: 1 stig.
Hér má sjá tölfræðiskjal leiksins. Hér eru myndir úr ferðinni.
Eftir leik:
Að leik loknum var gistihús leigt undir leikmenn og tekið til við að spila póker. Að honum loknum héldu 83% leikmanna út á lífið á meðan restin horfði á sjónvarpið og hugsaði sinn gang. Eldsnemma daginn eftir var svo haldið á vit nýrra ævintýra um borð í Herjólfi, þar sem allir sváfu vært reynslunni ríkari, nema Finnur, Davíð og Gutti sem ákváðu að taka 6 mínútna flug til landsins í staðinn.
Það er mál manna að hér hafi verið um stórskemmtilega ferð að ræða sem þjappaði hópnum vel saman fyrir leiktíðina.