2. vs. Glói 05.11.07.
Mánudaginn 5. nóvember 2007 var fyrsti heimaleikur meistaraflokks UMFÁ í körfubolta spilaður í íþróttahúsinu á Álftanesi. Nágranna félagsins, Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, var boðið að horfa á leikinn en hann hafði öðrum hnöppum að hneppa. Þrátt fyrir fjarveru hans mættu milli 50 og 100 manns á leikinn og var góð stemning.
Leikurinn byrjaði af miklum krafti og komust nokkrir leikmenn strax í villuvandræði. UMFÁ náði forystu fljótlega og var yfir í lok fyrsta fjórðungs 20-16. Glói var nálægt því að jafna í lok þriðja leikhluta þegar staðan var 59-52 en nær komust þeir ekki. Leikurinn fór 73-66 UMFÁ í vil og var sigurinn aldrei í hættu. Leikurinn einkenndist af miklum villufjölda og tíðum ferðum á vítalínuna. UMFÁ fékk á sig 28 villur en Glói 20 villur.
Góður leikur, þó margt megi bæta, einkum og sér í lagi vítanýtinguna.
Eins og í leiknum gegn ÍBV var Daði allsráðandi í stigaskori með 27 stig en hann tók einnig 15 fráköst. Hér er tölfræði leiksins og hér eru myndir úr leiknum frá karfan.is.
Hér eru svo fleiri myndir frá leiknum á myndasíðunni. Við þökkum Gunnari Gunnarssyni, ljósmyndara, fyrir þessar myndir. Hans er höfundarrétturinn, mátturinn og dýrðin.