Nýlegar athugasemdir

Leikmenn

Hafa samband

karfa.alftanes@gmail.com

3. vs. Laugvetningar 19.11.07.

Lið Álftanes byrjaði leikinn af krafti og náðu undirtökum strax frá byrjun. UMFÁ spiluðu agressíva svæðisvörn sem kom Laugdælum í opna skjöldu og höfðu þeir engin svör við vörn heimamanna. Daði byrjaði leikin af krafti og setti niður 7 stig í röð á stuttum kafla sem Laugdælir náðu aldrei að svara. Einnig var hann grimmur í fráköstum og langsamlega besti maður vallarins. Laugdælir settu niður ljótan þrist og virtust ekki eiga séns í heimamenn. Að leikhlutanum loknum var staðan 17-7 heimamönnum í vil. Daði var með 9 stig og 6 fráköst og Davíð koma þar á eftir með 7 stig og átti fínan leik. Þrátt fyrir gott forskot heimamanna voru þeir með 7 tapaða bolta.

  Laugdælir komu ákveðnari til leiks í öðrum leikhluta en voru alltaf að elta. Lið UMFÁ var rólegt og kom Daði sér annan leikin í röð í villuvandræði snemma leiks. Víðir kom sterkur inn og skoraði tvo gæðaþrista ásamt því að spila hörkuvörn og að leysa máttlausa pressu þeirra Laugdælamanna oft á tíðum upp á sitt einsdæmi. Leikmenn eins og Sturlan, Svenni, K.O. og Böggi komu inná og hvíldu lykilmenn og skiluðu gæðamínútum. Forskot heimamanna hélst 10-12 stig allan leikhlutann. Víðir skoraði 6 stig í leikhlutanum og var ásamt Ragga besti maður leikhlutans. Staðan í hálfleik 32-22 heimamönnum í vil.

  Í þriðja leikhluta náðu heimamenn sér aldrei á strik. Þeir fóru í flestar sínar sóknaraðgerðir með hálfum huga og virtust vera áhorfendur á eigin leik. Laugdælir spiluðu svæðisvörn sem virkaði vel og illa gekk fyrir UMFÁ að koma boltanum nálægt körfunni, hvað þá ofan í hana. Einnig pressuðu Laugdælir stíft sem varð til þess að heimamenn töpuðu boltanum oft eða alls 9 sinnum í leikhlutanum sem er ekki vænlegt til árangurs. Laugdælir sóttu grimmt á körfu UMFÁ og uppskáru margar villur á heimamenn sem skilaði þeim 11 vítatilraunum. Settu þeir 7 af þeim ofan í.  Það voru helst Finnur og Davíð sem voru með lífsmarki en Davíð skoraði 5 stig í leikhlutanum og tók 4 fráköst og Finnur skoraði 2 stig, tók 4 fráköst, stal bolta, varði skot með tilþrifum sem og gaf glæsilega stoðsendingu á Daða. Staðan jöfn 42-42 eftir versta leikhluta vetrarins hjá UMFÁ.

  Fyrstu 3-4 mínúturnar í fjórða leikhluta voru barráttu mínútur. Heimamenn voru þó með frumkvæðið og leiddu leikinn með 2-3 stigum en náðu ekki að hrista Laugdæli af sér. Þá var eins og himnarnir opnuðust og þessi líka þriggja stiga rigningin frá Davíð í kjölfarið! Allir sem inná voru umturnuðust, spiluðu hörkuvörn og voru staðráðnir í að gefa allt í lokamínúturnar. Daði kom aftur sterkur inn en spilaði leikhlutann með 4 villur. Davíð skoraði 14 stig í leikhlutanum og gaf 3 stoðsendingar og er óhætt að segja að stórleikur hans í lokaleikhlutanum hafi fært heimamönnum sigurinn þó að sjálfsögðu það hefi verið sterk liðsheild sem skóp hann. Daði skoraði 7 stig og tók 3 fráköst í fjórða leikhluta og Finnur átti einnig frábæran leikhluta með 2 stig, 3 fráköst, stoðara og eitt fallegt þriggja stiga face(varinn bolti).  Einnig skilaði Gísli sínum besta leikhluta með 4 stolna bolta en annars var hann dapur í leiknum. Það var vel viðeigandi að Davíð setti slaufuna á pakkann undir lokin og setti niður þrist þegar 5 sekúndur voru eftir af leiknum og Gísli setti hendur upp í loft og tilbað þriggjastiga guðinn(sjá mynd) og urðu lokatölur leiksins 68-55.

  Á heildina litið var þetta ágætur leikur en þó vantar stöðugleika. Einnig hefði verið hægt að nýta bekkinn betur því yfirleitt skiluðu menn gæðamínútum þegar þeir komu inná. Maður leiksins var Davíð ”þristur” Jónsson.

-Ritstjórn-

Myndir frá leiknum.

Myndir og grein frá leiknum á karfan.is.

Tölfræði leiksins.