4. vs. KKF Þórir 03.12.2007.
Það var búið að hamra á því fyrir leikin að vera í gjörsamlega réttu andlegu ástandi til að vinna körfuboltaleik sannfærandi og gekk það svo sannarlega eftir. Það var lagt upp með ákveðið leikskipulag sem gekk mjög vel upp. Fyrstu mínúturnar í leiknum voru þó ekki ýkja skemmtilegar en heimamenn þó með frumkvæðið. Svenni mætti í orðsins fyllstu dýrvitlaus til leiks og hafði barrátta hans jákvæð viðbrögð á aðra í liðinu. Svenni frákastaði vel og spilaði vörn þannig að unun var á að horfa. Jafnt og þétt jókst forskot heimamanna og um miðjan leikhlutann var öllum skipt út og inn komu ferskir fætur. Davíð ákallaði þriggja stiga guðinn og hann svaraði með þriggja stiga regni. Raggi og Flóki settu þrista og Davíð hélt áfram uppteknum hætti frá síðasta leik með þremur þristum. Staðan 28 – 16 eftir fyrsta leikhluta.
Áfram var haldið að rótera mannskapnum og þegar þessi leikhluti hófst höfðu allir komið við sögu. Daði og Finnur áttu teiginn og tóku því sem næst öll fráköst sem í boði voru. Þriggja stiga guðinn blessaði Flóka í þessum leikhluta en hann setti þrjá á skömmum tíma. Bóbó skilaði gæðamínútum og Svenni hélt áfram að spila eins og engill(brjálaður engill –Vítisengill kannski?). Þetta var leikhluti þar sem liðsheildin var í botni og allir spiluðu sitt hlutverk fullkomlega. Heimamenn vinna leikhlutann 25 – 12 og staðan því vænleg í hálfleik, eða 53-28.
Hálfleiksræðan hjá Þjálfa G var í rólegri kantinum og ákváðu menn að gefa ekki þumlung eftir. Þórismenn komu ákveðnari til leiks og spiluðu mun betur en fyrstu tvo leikhlutana en þó hélst þetta 20-25 stiga forskot framan af leikhluta. Álftnesingar héldu áfram að deila spilatíma bróðurlega á mannskapinn og voru menn að skila gæðamínútum áfram. Þegar tæpar tvær mínútur voru til lok þriðja leikhluta og staðan 70 – 47 heimamönnum í vil var eins og kæruleysi gripi um sig og Þórismenn nýttu það vel með því að skora sjö síðustu stig leikhlutans án þess að heimamenn ná að svara. Staðan því skyndilega ekki svo svört fyrir Þórismenn, 70 – 54.
En menn áttuðu sig á því hvað ætti að gera og var það einfaldlega gert. Þegar tæpar 4 mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta var staðan orðin 87 – 56 og gleði ríkjandi hjá heimamönnum. Þriggja stiga maðurinn Davíð setti þrjá þrista í röð og var öruggur á vítalínunni, var með 5 af 6 í leikhlutanum. Daði var mjög grimmur og skoraði 8 stig og tók 5 fráköst í leikhlutanum. Undir lokin voru menn svo orðnir kærulausir og skoruðu Þórismenn óþarflega auðveldar körfur undir lokin. Þetta var öruggur sigur allt frá upphafi og greinilegt að það býr mikið í liði Álftnesinga.
Menn leiksins: Davíð “þristur” Jónsson og Svenni “steel” Guðmundsson.
En annars skiluðu allir gæðamínútum og var það sterk liðsheild fyrst og fremst sem skilaði þessum gæðasigri.
-Ritstjórn-